Hlynur Andrésson með Íslandsmet í 3.000 m hlaupi
Hlauparinn Hlynur Andrésson ÍR keppti í gær í 3.000 m hlaupi á Ryan Shay Invitational í Notre Dame í Bandaríkjunum. Hann kom fyrstur í mark í hlaupinu eftir frábæran endasprett og hljóp hann á tímanum 8:02,08 mínútum (OT). Er þessi tími nýtt persónulegt met hjá Hlyni en hann var að bæta sig um rúmar 4,5 sek og bætti um leið Íslandsmetið í greininni sem var í hans eigu og var áður 8:06,69 mín. Frábærlega gert hjá Hlyni og verður mjög sprennandi að fylgjast með honum á innanhússtímabilinu sem er aðeins rétt að byrja.
�?ess má geta að Hlynur er sem stendur í 22. sæti á NCAA listanum sem er virkilega flottur árangur. www.fri.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.