Ný Vestmannaeyjaferja sigli nær alfarið fyrir rafmagni
Samgönguráðuneytið hefur falið Vegagerðinni að semja við pósku skipasmíðastöðina CRIST C.A. um að nýja Vestmannaeyjaferjan verði útbúinn með stærri rafgeymum og tengibúnaði þannig að unnt verði að hlaða skipið í landi og sigla þannig milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar fyrir rafmagni eingöngu.
Við upphaflega hönnun ferjunnar var gert ráð fyrir vélar um borð myndu hlaða rafgeymana með rafmagni til að knýja skrúfur skipsins. �?annig myndu hefðbundnar vélar framleiða rafmagnið en síðar mætti bæta við rafgeymum og þá hlaða skipið í landi. �?að var því gert ráð fyrir tvinnskipi en nú verður hönnun breytt og skipið verður tengitvinnskip.
Samgönguráðuneytið vísar til stefnu ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Skipasmíðastöðin hefur lagt fram tilboð um þessa breytingu en í því felst að setja stærri rafgeyma í Herjólf en einnig þarf að koma upp tengibúnaði fyrir hleðslu úr landi hvorttveggja í Vestmannaeyjum og í Landeyjahöfn. Ráðuneytið reiknar með að fjárfestingin muni skila sér á 10 árum en nokkur kostnaður mun hljótast af breytingunni á skipinu og uppbyggingunni í landi. Ráðuneytið mun beita sér fyri sérstakri fjárveitingu vegna verkefnisins.
�?essi breyting mun einnig seinka afhendingu nýrrar Vestmannayjaferju nokkuð, að öllum líkindum um nokkrar vikur, en reynt verður að lágmarka þann tíma svo sem kostur er.
Smíði ferjunnar gengur annars vel sem sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni og voru teknar í Póllandi seint í nýliðnum janúar.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.