Stefnt á opinn fund um rekstur Herjólfs
Á fundi bæjarráðs á mánudaginn var farið yfir mögulega aðkomu Vestmannaeyjabæjar að rekstri Herjólfs. Kom þar fram að stýrihópur sem skipaður var til að leiða viðræður að hálfu Vestmannaeyjabæjar hafi fundað með Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra fyrir skömmu. Samkvæmt fundargerð var fundur með ráðherra jákvæður í alla staði. Sammæltust fundarmenn um að halda fljótlega opinn fund þar sem enn á ný yrði gerð grein fyrir stöðu mála.
�?á kom einnig fram að stefnt sé að fundi með samgöngunefnd Alþingis á morgun, fimmtudag þar sem þessi mál og önnur verði rædd. Jafnframt fól bæjarráð stýrihópnum að vinna áfram að framvindu málsins á grundvelli þeirrar viljayfirlýsingar sem undirrituð var af Samgönguyfirvöldum og Vestmannaeyjabæ.
Eyjafréttir stóðu fyrir léttri skoðanakönnun á vefnum sínum þar sem við spurðum einfaldlega, hver á að reka Vilborgu? �?rír svarmöguleikar voru í boði. Flestir voru á því að Vestmannaeyjabær ætti að annast reksturinn eða 46.3%. Ekki var það þó mjög afgerandi því 44.4% þeirra sem svörðu sögðu útboð réttu leiðina. �?riðji svarmöguleikinn var svo núverandi rekstraraðili Herjólfs, Eimskip og völdu 9.3% svarenda þann kostinn. Rétt er þó að taka það fram að þátttaka var mjög lítil en aðeins 56 svöruðu og því langt frá því að vera marktæk könnun.

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.