Fjölgun í barnaverndarmálum undanfarin ár
Tilkynningum til barnaverndarnefnda á öllu landinu fjölgaði um 9,6% á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 miðað við sama tímabil árið á undan. Fjöldi tilkynninga á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 var 7.292 tilkynningar, en 6.652 á sama tímabili árið á undan. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 um 11,2%, en á landsbyggðinni fjölgaði tilkynningum um 6,1% ef miðað er við sama tímabil árið á undan.
Sískráning barnaverndarmála í nóvember og desember 2017 var til umfjöllunar hjá fjölskyldu- og tómstundarráði Vestmannaeyjabæjar á síðasta fundi ráðsins. Í nóvember bárust tíu tilkynningar vegna níu barna. Mál átta barna voru til frekari meðferðar. Í desember bárust sex tilkynningar vegna sex barna.
Meðalfjöldi tilkynninga á bilinu 15-20 á mánuði
Guðrún Jónsdóttir yfirfélagsráðgjafi Vestmannaeyjabæjar sagði í samtali við Eyjafréttir að barnaverndarmálum hafi verið að fjölga undanfarin ár. �??�?að hefur verið fjölgun í barnaverndarmálum undanfarin ár hjá okkur en það er einnig fjölgun á landsvísu. Meðalfjöldi tilkynninga á mánuði hefur verið á bilinu 15-20 undanfarin ár hér í Vestmannaeyjum,�?? sagði Guðrún.
Flestar tilkynningar koma frá lögreglu
Guðrún sagði flestar tilkynningarnar koma frá lögreglunni. �??Einnig koma margar tilkynningar frá skólunum, almenningi og foreldrum barnanna eða jafnvel barninu sjálfu.�??
Ekki verða samt allar tilkynningar að barnaverndarmáli. �??Ef tekin er ákvörðun um að kanna aðstæður barns er málið orðið barnaverndarmál. Könnun getur síðan leitt í ljós að þörf er fyrir frekari aðstoð eða að málinu sé lokað þar sem ekki er þörf á aðgerðum,�?? sagði Guðrún.
Snúa sér til félagsþjónustunar ef fólk hefur áhyggjur
Aðspurð um hvað fólk ætti að gera hefði það áhyggjur að barni sagði Guðrún að í Vestmannaeyjum ætti fólk að snúa sér til félagsþjónustunnar. �??�?að er gott að geta þess að sá sem hefur áhyggjur af aðstæðum barna, hvort sem það er vegna vanrækslu, gruns um ofbeldi eða vegna þess að barnið sé að sýna af sér einhverja áhættuhegðun, ber að tilkynna það til barnaverndar þar sem barnið er búsett. Í Vestmannaeyjum á fólk að snúa sér til félagsþjónustunnar til að koma tilkynningum á framfæri. �?að eru síðan starfsmenn barnaverndar sem meta þessar tilkynningar og annast könnun mála og í framhaldinu leggja til stuðningsaðgerðir til aðstoðar barninu og fjölskyldunni ef þörf er á,�?? sagði Guðrún að lokum.

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.