Að lifa og njóta með Jóa Pé og Króla
Einn alvinsælasti dúett Íslands í fyrra, Jói Pé og Króli, koma til Eyja í dag og verða með tvenna tónleika.
�?eir spila tvisvar á Háaloftinu/Höllinni. Fyrst á barna- og unglingatónleikum kl. 17.00 (húsið opnar 16.30) Verð 1.900,- í forsölu en 2.500,- við hurð og frítt fyrir yngri en 5 ára…
Kvöldtónleikar kl. 22.00 (húsið opnar kl. 21.00) Verð 2.500,- í forsölu en 3.500,- við hurð.. Forsala á tónleikana er í gangi í Tvistinum. 18 ára aldurstakmark á kvöldtónleikana. 16-18 ára geta einnig komið á kvöldtónleikana í fylgd forráðamanns eða foreldris.
JóiPé og Króli slógu í gegn með laginu �??B.O.B.A.�?? sem var eitt vinsælasta lag landsins á síðasta ári. �?eir hafa sent frá sér tvær plötur á stuttum tíma og sú seinni, Gerviglingur fékk gríðarlega góðar viðtökur og um tíma sátu öll átta lög plötunnar á topp 20 yfir vinsælustu lögin á Spotify á Íslandi. Strákanir hafa verið duglegir að koma fram út um allt land og á næstu misserum er von á nýju efni sem spennandi verður að fylgjast með.
Við biðjum Eyjamenn að nýta sér forsöluna, því við viljum alls ekki lenda í því að þurfa að vísa börnum eða fullorðnum frá. Tónleikarnir verða á Háaloftinu, nema við hreinlega verðum að flytja þá í Höllina vegna aðsóknar.
Sýnum þessum peyjum í verki að við kunnum að meta það að þeir leggi á sig ferðalag til Eyja um miðjan vetur til að skemmta okkur. 😉

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.