Eyjamenn fara með sjö marka forystu til Ísrael - myndir
ÍBV vann góðan sjö marka sigur á ísraelska liðinu Ramhat Hashron í fyrri viðureign liðanna í 16 liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu, lokastaða 32:25.
Jafnræði var með liðunum framan af en gestirnir urðu fyrir blóðtöku strax á 13. mínútu leiksins þegar leikmaður þeirra uppskar rautt spjald fyrir lemja Agnar Smára Jónsson í andlitið þegar hann var í þann mund að láta vaða á markið. �?t fyrri hálfleikinn skiptust liðin á að leiða en það voru Eyjamenn sem höfðu eins marks forystu þegar flautan gall eftir 30 mínútna leik, staðan 15:14.
Hægt og bítandi jókst munurinn á liðunum og var hann lengi vel fjögur mörk. Náðu gestirnir frá Ísrael að minnka muninn í tvo mörk þegar um korter lifði leiks en í stað þess að fylgja því eftir settu liðsmenn ÍBV í næsta gír og juku forskot sitt á nýjan leik og gott betur en það. Sjö marka sigur niðurstaðan og útlitið nokkuð gott fyrir Eyjamenn í viðureigninni. Seinni leikurinn mun fara fram næstu helgi en þá verður spilað í Ísrael.
Sigurbergur Sveinsson og Agnar Smári Jónsson voru markahæstir í liði ÍBV með sjö mörk en á eftir þeim kom Theodór með sex. Aron Rafn Eðvarðsson átti stórleik í marki ÍBV með 19 skot varin.
– myndir

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.