Náttúrustofu Suðurlands mun falla frá tilkynntri ákvörðun um lækkun starfshlutfalls
Stjórn Náttúrustofu Suðurlands (NS) mun falla frá tilkynntri ákvörðun um lækkun starfshlutfalls forstöðumanns Nátturustofu Suðurlands. �?essu var greint frá í bókun frá Vestmannaeyjabæ.
Bæjarráð var upplýst um erindi bréfsins á fundi sínum þann 6. febrúar s.l. og þar var einnig farið yfir fjárhagsstöðu NS. Bæjarráð ítrekaði ósk sína að stjórn geri breytingar á rekstri NS þannig að útgjöld verði ekki umfram rekstrarframlögin og aðrar tekjur.
Undir þessum lið fjallaði stjórnin á ný um tölvupóst frá skrifstofustjóra umhverfisráðuneytisins til forstöðumanns NS dags. 8. janúar s.l. Stjórn Náttúrustofu Suðurlands hefur ákveðið að bregðast við tölvupósti umhverfisráðuneytisins við frekari niðurfærslu á fjárframlagi 2018 sbr. ábendingu um ákvæði 10. gr. laga nr. 60/1992. Stjórn NS mun falla frá tilkynntri ákvörðun um lækkun starfshlutfalls forstöðumanns.
Stjórn NS mun í framhaldinu meta málið að nýju á næstu dögum og bregðast við með viðeigandi hætti miðað við fram komnar forsendur og verri rekstrarstöðu s.l. árs eins og fram hefur komið er staðan neikvæð um 3.5 milljónir vegna ársins 2017.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.