Með óbreyttum kvóta verður áherslan lögð á hrognavinnslu
Skip Ísfélagsins, Álsey VE, Heimaey VE og Sigurður VE voru að gera klárt fyrir grunnnnótina og kíkja á loðnumiðin í þessari viku. Áður voru skipin búin að fá um 13.000 tonn og á Ísfélagið eftir um 23.000 tonn eftir þá litlu viðbót sem gefin var út á dögunum. Eitthvað verður fryst en miðað við óbreyttan kvóta verður áherslan lögð á hrognavinnslu.
�??�?eir eru að taka grunnæturnar og fara út í vikunni,�?? sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins í gær. �??�?að verður þó í litlu mæli og meira til að kanna stöðuna. Við ætlum að bíða eftir að loðnan verði hæf til hrognatöku sem verður í lok mánaðarins.
Eyþór sagðist á sjálfsögðu vonast þeir eftir meiri úthlutun. �??En við göngum út frá því sem við höfum en viðbót væri góð búbót.
Veðrið hefur ekki verið gæfulegt og langtímaspáin gefur ekki ástæðu til bjartsýni um að það fari á lagast,�?? sagði Eyþór að endingu.

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.