Samstarf Vestmannaeyjabæjar við BUGL og HSU
Formlegt samstarf Vestmannaeyjabæjar við BUGL og HSU var kynnt á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs á miðvikudaginn. �?ar kynnti Guðrún Jónsdóttir yfirfélagsráðgjafi formlegt samstarfs Vestmannaeyjabæjar við BUGL og HSU. Vestmannaeyjabær í samstarfi við BUGL og HSU stefna að því að undirrita samstarfssamning sem tengist greiningum, meðferð, stuðningi og eftirfylgni barna með hegðunar- og geðraskanir ásamt því að vinna saman að málefnum einstaklinga og fjölskyldna sem fá þjónustu hjá umræddum aðilum.
Í þessu skyni er komið á fót samstarfsverkefni milli HSU/heilsugæslu Vestmannaeyja, Fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyja og Barna- og unglingageðdeildar Landsspítalans um málefni einstaklinga, barna og fjölskyldna í Vestmannaeyjum. Ráðið fagnar þessum framtaki enda frábært og þarft framtak.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.