Fá heimamenn að hafa áhrif á nafn nýrrar ferju?
Fátt hefur verið meira rætt í Vestmannaeyjum seinustu vikur en hvaða nafn ný Vestmannaeyjaferja á að bera. Sagt hefur verið frá því að byrjað sé að nota nafnið Vilborg á nýsmíðina en sitt sýnist hverjum. �?annig sagði Elliði Vignisson bæjarstjóri í viðtali við kvöldfréttir Stöðvar 2 að eðlilegt væri að heimamenn hefðu aðkomu að ákvörðun um nafnið á ferjuna sem verður jú lífæð samfélagsins hér í Eyjum. (Sjá hér: https://www.facebook.com/ellidi/videos/10156082945594181/).
Samkvæmt heimildum Eyjafrétta er nú í undirbúningi að halda íbúafund um samgöngur á sjó í næstu viku þar sem kynnt verður staða mála hvað varðar samgöngur á sjó. Eftir því sem Eyjafréttir komast næst er einnig í skoðun að nota fundinn til að kjósa um nafn á ferjuna. �?að kann því að fara svo að heimamenn sjálfir fái að hafa áhrif á nafngiftina og verður þá fróðlegt að sjá hvort niðurstaðan verður karlmannsnafnið Herjólfur eftir landnámsmanninum Herjólfi Báðrðarsyni sem notað hefur verið síðan 1959 eða Vilborg eftir dóttur hans sem þótti góðhjörtuð og gjörfuleg.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.