Dæmdur fyrir líkamsárás á Lundanum
Karlmaður á fertugsaldri var í upphafi mánaðar dæmdur í 28 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og tollalagabrot. 22 mánuðir refsingarinnar eru bundnir skilorði. Með brotunum rauf maðurinn skilorð sem útskýrir lengd refsingarinnar. www.visir.is greindi frá.
Manninum var gert að sök að hafa árið 2016 gengið í skrokk á öðrum manni á veitingastaðnum Lundanum í Vestmannaeyjum. Var sú líkamsárás sögð stórfelld í ákæru. Saksóknara tókst ekki að sanna nema lítinn hluta brotsins og var maðurinn því ekki sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás.
Maðurinn játaði hins vegar að hafa haft í fórum sínum ellefu ólöglega innfluttar tóbaksdósir. Honum var gert að greiða fjórðung alls sakarkostnaðar, rúmar 550 þúsund krónur.Hinn sakfelldi á að baki langan brotaferil. 2010 var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og rán og árið 2011 hlaut hann fjögurra ára dóm fyrir líkamsárás.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.