Lágkúruleg aðför góða fólksins
Hvers eiga dugmiklir þingmenn eins og Ásmundur Friðriksson eiginlega að gjalda í þessu samfélagi? Mega menn ekki sinna sinni vinnu af ákefð og metnaði án þess að verða fyrir barðinu á hinu alræmda góða fólki sem svífst einskis. Fólkinu sem �??setur sjálft sig á hærri siðferðislegan hest en annað fólk. Telur sig þess umkomið að tala með yfirlæti niður til annarra með einhverjum upphöfnum umvöndunartón, sem felur eiginlega í sér staðhæfinguna: �??ég er betri manneskja en þú,�?? eins og Páll Magnússon orðar það.
Við erum að tala um menn sem vinna óeigingjarnt starf í þágu lands og þjóðar, fara á hinar ýmsu bæjarhátíðir og uppákomur út um allar trissur. Við erum að tala um viðburði þar sem æskilegt er að þingmenn láti sjá sig, sviðaveislur, þorrablót og þess háttar. Við erum að tala um að þjónusta kjósendur í landinu, því góðar hugmyndir eins og að kanna bakgrunn allra múslima í landinu, ganga úr skugga um að þeir hafi nokkuð fengið þjálfun í herbúðum hryðjuverkamanna, verða ekki til í tómarúmi. Eða koma í veg fyrir að hælisleitendur fái lágmarks tannlæknaþjónustu sem felst annað hvort í verkjatöflum eða að tennurnar séu dregnar úr þeim.
Hvað með það þó Ásmundur hafi fengið 4,6 milljónir króna í endurgreiðslur vegna aksturs í fyrra, eða um 385 þús¬und krónur á mán¬uði. Á hann ekki bara rétt á því fyrst hann braut ekki neinar reglur og fékk engar athugasemdir frá þinginu? Tala ekki sjálfsmyndirnar og stöðfærslurnar á facebook sínu máli? Liggur þetta ekki í augum uppi? Hvað með það þó endurgreiðslan sé hærri en árslaun margra launþega í landinu. Hvað með það þó þetta sama fólk þurfi að ferðast langar leiðir til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og berjast með kjafti og klóm um hverja krónu. Svona er þetta bara. Reglurnar.
Sem betur fer standa strákarnir okkar úr Suðurkjördæmi saman í þessu og láta engan bilbug á sér finna þó eitthvað hyski sem gengur undir nafninu �??góða fólkið�?? stofni til leiðinda og setji sig enn og aftur á háan hest. �?urfa ekki aðrir þingmenn hreinlega að fara að hugsa sinn gang og sinna fólkinu í landinu meira eins og Ásmundur gerir? Keyra meira í staðinn fyrir að gagnrýna aðra þingmenn í lélegum sjónvarpsþáttum á R�?V?
Annars er undirritaður staðsettur í Reykjavík um þessar mundir, í tveggja vikna leyfi frá störfum til að fara með tveggja ára gamalt barn sitt í skurðaðgerð. Móðir og barn fá að vísu ferðakostnað greiddan til baka (tvær ferðir á ári) en ég þarf að borga því sem nemur flugferð frá Íslandi til San Francisco til þess eins að komast milli lands og Eyja. Svona eru bara reglurnar.

Nýjustu fréttir

Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.