Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum
Á heimasíðu Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga er nú auglýst eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi.
Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:
Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi
Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi
Að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sass.is
Athugið að umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að sækja um styrk á íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila. Sækja má um íslykil hér.
Starfandi fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að sækja um styrk vegna nýsköpunarverkefna.
Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna hér.
Tekið er við umsóknum til og með 13. mars 2018.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.