Auknum kostnaði í heilbrigðisþjónustu velt á sjúklinga
�?ann 1. mars hækkuðu stjórnvöld greiðsluþátttökuþak fyrir heilbrigðisþjónustu um 2% og á sama tíma var komugjald á sjúkrahús hækkað um 2,3 til 3,2%. Einnig hefur einingarverð sjálfstætt starfandi sérfræðilækna hækkað um 5% frá því að nýja kerfið tók gildi 1. febrúar 2017. �?essar hækkanir koma í kjölfarið af fréttum um aukna greiðsluþátttöku lífeyrisþega sem nemur um 16% fyrir hópinn í heild og má m.a. rekja til kostnaðar við þjónustu sérfræðilækna.
Í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar um �??Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu�?? er bent á að fullnægjandi greiningu vanti þegar stofnunin gerir samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega er bent á rammasamning við sjúkraþjálfara og sjálfstætt starfandi lækna í þessu samhengi. Í úttekt Ríkisendurskoðunar er bent á að samningurinn við lækna sé �??án skýrra takmarkana um magn�?? og feli í sér �??fjárhagslega hvata til mikilla afkasta óháð gæðum og árangri�??.
Viðbrögð Sjúkratrygginga voru að boða uppsögn á rammasamningum við sjálfstætt starfandi sérfræðilækna og sjúkraþjálfara með sex mánaða fyrirvara. Enn hefur þó ekki komið til uppsagnar en í frétt frá stofnuninni segir að það verði ekki gert fyrr en velferðarráðuneytið hafi tekið afstöðu til nauðsynlegra aðhaldsaðgerða í samræmi við fjárlög 2018.
Í áðurnefndri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um skort á stefnumótun af hálfu stjórnvalda og veikleika í þarfagreiningu og gæðaviðmiðum við samningagerð Sjúkratrygginga. Viðbrögð stjórnvalda eru, enn á ný, að velta auknum kostnaði yfir á sjúklinga.
ASÍ hefur ítrekað mótmælt of háu greiðsluþaki sjúklinga og bent á að hlutfallslega fleiri fresti læknisheimsóknum hér á landi en á hinum Norðurlöndunum vegna kostnaðar. Hækkun á greiðsluþátttöku mun auka enn á þennan vanda. ASÍ skorar á stjórnvöld að hætta við þessa hækkun, sem bitnar verst á þeim tekjulægstu, og eykur ójöfnuð enn frekar.

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.