Rúmlega 90m2 einbýlishús á rúmar 20 milljónir
Platan var steypt á �?orláksmessu, sama daga og húsið kom í tveimur 40 feta fletum til Eyja frá Eistlandi. Strax var hafist handa um að reisa húsið og hjónin Helga Dís Gísladóttir og Rafn Kristjánsson voru flutt inn 17. febrúar. Húsið er einingahús úr timbri, rúmir 90 fermetrar á einni hæð og fellur vel inn í umhverfið þar sem það stendur við Hásteinsveg 14 þar sem áður stóð húsið Hólar. Heildarkostnaður er áætlaður rúmar 20 milljónir.
Blaðamaður bankaði upp á hjá þeim í síðustu viku og eru þau búin að koma sér vel fyrir en eiga eftir að ganga frá ýmsu smálegu bæði innan dyra og utan.
Viðtalið í heild má nálgast í nýjasta tölublaði Eyjafrétta og í vefútgáfu blaðsins.

Nýjustu fréttir

„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.