Eyjamenn í úrslit
Karlalið ÍBV í handbolta er komið í úrslit Coca Cola bikarsins eftir sigur á Haukum, lokastaða 27:25.
�?að var allt í járnum fyrstu 30 mínúturnar en hálfleikurinn endaði með ótrúlegri atburðarrás þar sem Dagur Arnarsson var sendur út af með rautt spjald.
Haukar voru með yfirhöndina alveg þangað til korter lifði leiks en þá tók við vægast sagt góður kafli hjá Eyjamönnum sem skoruðu næstu níu mörk og breyttu stöðunni í 25:20. Svo fór að Eyjamenn unnu tveggja marka sigur og tryggðu sér farseðilinn í úrslitaleikinn sem fram fer á morgun.
Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk. Aron Rafn Eðvarðsson var með 14 skot varin í markinu.

Nýjustu fréttir

Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Skemmtilegast að sauma í skólanum
Gaman að vera byrjaður í skólanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.