VSV býður uppá fría rútuferð á leik KR og ÍBV

VSV býður stuðningsmönnum uppá fría rútuferð á leik KR – ÍBV sem fram fer á sunnudaginn nk. kl 14:00.

ÍBV mætir KR á Alvogenvelli, í evrópuslag í 18.umferð Pepsideildarinnar. Með sigri er orðinn raunhæfur möguleiki á því að ÍBV verði aftur í evrópukeppninni á næsta ári.
Er því um sannkallaðan úrslitaleik að ræða og þarf liðið því allan þann stuðning sem það getur hugsanlega fengið.

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum ætlar að kosta rútur fyrir rúmlega 100 manns svo unnt sé að mynda alvöru eyjastemmingu á þessum mikilvæga leik. (Borga þarf fyrir Herjólfsferð og miða á völlinn).
Allir velkomnir sem ætla að styðja liðið til sigurs og helst að mæta í treyju eða ÍBV merktu.
Rútan fer frá Landeyjahöfn eftir 11:00 ferð Herjólfs úr Eyjum, tekur upp stuðningsmenn á Hvolsvelli kl 12:00 á N1 sjoppunni og keyrir svo beint á völlinn þar sem verður grill og kaldur til sölu á vellinum. Rútan heldur af stað til baka eftir leik kl 16:00 og stoppar á Hvolsvelli aftur á N1 sjoppunni þar til hún heldur af stað til að ná 19:45 ferð Herjólfs til Eyja.

Skráning hér: http://ibvsport.is/page/vsv-rutuferd

KOMUM FAGNANDI

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.