Áhugavert málþing um stöðu Vestmannaeyja í nútíð og framtíð

Á sunnudaginn, 17. febrúar verður opið málþing í Kviku, bíósal í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjakaupstaðar. Á málþingið mæta áhugaverðir fyrirlesarar en yfirskrift málþingsins er Nútíð, fortíð og framtíð Vestmannaeyja, tækifæri og ógnanir.

Málþingið hefst kl. 14.30 og stendur til 16.30. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri setur málþingið. Húsið opnar kl. 14.00 og munu rúlla 200 ljósmyndir úr sögu Vestmannaeyja á tjaldi, hinar sömu og voru sýndar á hátíðarbæjarstjórnarfundinum á fimmtudaginn sl.

Frummælendur eru dr. Ágúst Einarsson, prófessor og fyrrverandi rektor Haskólans á Bifröst sem talar um samspil atvinnulífs og menningar. Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar talar um tækifærin sem liggja í ferðaþjónustunni. Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, frumkvöðull og stofnandi Protis ehf. á Sauðárkróki ræðir mikilvægi vísinda og nýsköpunar í sjávarútvegi. Ásgeir Jónsson, adjunkt við Háskólann í Reykjavík og umsjónarmaður Haftengdrar nýsköpunar segir frá nýsköpun og menntun í Bláa hagkerfinu.

Tryggvi Hjaltason, senior Strategist hjá CCP og formaður Hugverkaráðs spyr: Hvernig átt þú að tryggja að Vestmananeyjar sigri framtíðina?

Málþingsstjóri er Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Eyjafrétta.

Þingið er öllum opið og verður áhugavert að heyra mat fyrirlesara á stöðu Vestmannaeyja í dag og hvaða möguleika þau sjái framundan.

Kaffi og konfekt í lok málþings.

Nýjustu fréttir

Nýjungar og verðlaun á sjávarútvegssýningunni – myndir frá IceFish
Toppliðið heimsækir Hásteinsvöll
Elís Þór framlengir við ÍBV til 2028
Tveir tapaðir mánuðir í upphafi sumars
Átta vilja verða tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Ekki hægt að bóka tíma hjá augnlækni í Eyjum
Læsti 130 milljóna Lottómiða inni í skáp
Formaður Sjálfstæðisflokksins á fundi í Ásgarði á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.