Þátturinn tekinn upp í Vestmannaeyjum

„Ég hugsa til síðastliðins sum­ars með tals­verðum söknuði þegar ég sest niður í hæg­inda­stól­inn minn og skrifa nokk­ur orð um lokaþátt okk­ar í þáttaröðinni Lambið og miðin og ég held að ég eigi aldrei eft­ir að gleyma þeim dög­um sem fóru í tök­ur á þess­ari þáttaröð, segir læknirinn í eldhúsinu í pistli um síðasta þátt sinn í nýjustu þáttaröðinni sinni sem tekin var upp í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir hittu á læknirinn í Vestmannaeyjum síðasta sumar og tók Óskar Pétur Friðriksson myndir af veislunni hjá honum

„Og það var viðeig­andi að klára þessa seríu í Vest­manna­eyj­um – þess­ari dá­sam­legu gjöf­ulu eyju. Við byrjuðum á að heim­sækja Einsa kalda sem sagði okk­ur frá sinni aðferð við að mat­reiða skötu­sel. Hann leysti okk­ur meira að segja út með þessu dýr­ind­is­flaki af ein­um slík­um. Hann veit sín­um viti, hann Einsi kaldi.

Við kom­um okk­ur fyr­ir á Skans­in­um, og það er vart hægt að segja að veðrið hefði leikið við okk­ur þann dag­inn. Það bæði rigndi hressi­lega og blés með ein­dæm­um. Svo mjög að búa þurfti um tök­uliðið og vél­arn­ar okk­ar svo hægt væri að taka upp. En við lét­um veðrið ekki á okk­ur fá og elduðum dýr­ind­is­máltið með Heimaklett í bak­grunni, skötu­sel hjúpaðan söl­bragðbættu salti með kart­öflumús og ljúf­fengu sal­ati inn­blásnu frá Stóra-Dím­on, sjá fyrri þátt.

Og það er ekki annað hægt en að ljúka seríu sem þess­ari með al­menni­legri veislu. Og þessi var al­vöru. Við heil­grilluðum vest­mann­eyskt lamb, vel kryddað, á tortillu með dá­sam­legri hvít­laukssósu og bæði fersku og steiktu al­ís­lensku græn­meti.

Ég hugsa til baka til liðins sum­ars með ein­stöku þakk­læti í brjósti og hugsa oft hversu dýr­mætt það er að vera Íslend­ing­ur og fá að njóta allra þeirra stór­kost­legu for­rétt­inda sem þetta land veit­ir okk­ur,“ segir Ragnar.

Þátturinn er sýndur á Skjá einum í kvöld klukkan 20:00

Nýjustu fréttir

Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.