Breyting á framkvæmdaáætlun í Landeyjahöfn

Vegagerðin hefur ákveðið að fresta breytingu á hafnarmynni Landeyjahafnar til næsta sumars. Til stóð að útbúa plön fyrir dælukrana á endum hafnargarðanna  á grjótfylltum stáltunnum, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Hefja átti dælingu síðla árs 2020 með nýjum dælubúnaði, sem keyptur hefur verið til landsins og er áfram miðað við að svo geti orðið. Dælubúnaðurinn verður prófaður í haust og vetur á öðrum stað en í hafnarmynninu.

Samkomulag er við verktakann um þessa breytingu, sem jafnframt er gerð eftir samráð við skipstjórnarmenn Herjólfs sem telja ekki ráðlegt að ráðist sé í breytingar á höfninni á sama tíma og reynsla er að komast á siglingar á nýja skipinu. Einnig er kostur að veðurskilyrði eru sem best til framkvæmda við hafnarmynnið snemmsumars. Unnið hefur verið að breytingu á innri höfninni að undanförnu og verður henni lokið á næstu mánuðum. Breytingin felst í því að rýmka snúningspláss fyrir Herjólf og draga úr ókyrrð við hafnarbakkann, sem eykur öryggi sjófarenda í höfninni.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.