Óháða úttekt á Landeyjahöfn
Karl Gauti Hjaltason þingmaður

Frú forseti
Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um óháða úttekt á Landeyjahöfn
Ég er einn meðflutningsmanna á þessari tillögu ásamt öllum þingmönnum Suðurkjördæmis og styð hana að sjálfsögðu heilshugar, Tillagan gengur út á að hæstv. Samgöngu og sveitarstjórnarráðherra verði falið að hefja þegar óháða úttekt á Landeyjahöfn, allt í samræmi við samgönguáætlun og er ráðherra gert að ljúka þessari úttekt fyrir lok marsmánaðar næst komandi. Málið gengur sem sagt út á að þessari úttekt sem áætluð er í samgönguáætlun verði flýtt, enda ekki vanþörf á miðað við það ástand sem hefur verið við og innan hafnarinnar á undanförnum árum eða allt frá því hún var tekin í notkun fyrir rúmum 9 árum síðan.
Hvað er ég þarna að tala um? Jú, höfnin hefur lokast snemma flest haust og oft hefur opnun hennar dregist langt fram eftir hverju vori og eftir því sem ég man best hefur höfnin verið ónothæf fram yfir fermingar vor eftir vor. Vetraropnun hafnarinnar hefur verið næsta fátíður viðburður. Ef veðrinu hefur ekki verið um að kenna hefur oftast verið um sandburð að ræða sem fyllt hefur minni hafnarinnar og næsta nágrenni en einnig hefur sandburður verið til mikils ama innan hennar.
Tilkoma Landeyjahafnar á sínum tíma árið 2010 breytti miklu fyrir byggðina í Vestmannaeyjum, þegar fólk gat ferðast milli lands og Eyja á 30 mínútum í stað nær þriggja klukkustunda siglingar.
Og ekki síður vegna þess að fjöldi ferða jókst að sama skapi og fólk var ekki eins bundið við brottfarir ferjunnar og áður var.
Það var því létt brúnin á Vestmannaeyingum, sumarið 2010, þegar ferðir í Landeyjahöfn hófust og mikil bjartsýni ríkjandi meðal íbúa, fyrirtækja og þeirra sem voru títt á flækingi upp á land, – eins og það var í gríni kallað í Eyjum, en auðvitað líka fyrir þá sem Eyjarnar vildu sækja heim, sem voru þó nokkrir, enda kom í ljós að ferðamannastraumur stórjókst og margfaldaðist á meðan höfnin var og er í fullri notkun. Þeir aðilar sem stunda þjónustu við ferðamenn, hótel og veitingastaðir og aðrir aðilar sáu rekstrargrundvöll fyrirtækja sinna styrkjast mjög við tilkomu hafnarinnar.
Í þessu sambandi má ekki gleyma því að þegar höfnin var hönnuð og byggð þá var gert ráð fyrir því að unnt væri að sigla í höfnina, allt að 97% áætlaðra ferða á ársgrundvelli, ef ég man töluna rétt, en raunin varð allt önnur.
Ekki þarf ég hér að fjalla mikið um þau vonbrigði sem tíðar og á stundum vetrarlangar lokanir hafnarinnar hafa valdið íbúunum, sem margir hverjir byggja lífsafkomu sína á að samgöngur til og frá Eyjunum séu í lagi. Það gefur slíka augaleið.
Að mínu mati tel ég að gerð Landeyjahafnar sé hreint ekki lokið og höfnina eigi að klára og þessi úttekt sem hér yrði ráðist í, þarf að ganga út á það finna út og rannsaka, með ábyrgum hætti, hvaða lagfæringar þarf að gera til þess að höfnin geti nýst eins og hún var byggð til í upphafi.
Þannig er mikilvægt að þessi úttekt verði ítarleg. Og eins það er orðað í tillögunni, óháð í þeim skilningi að þar verði á vandaðan og hlutlausan hátt gengið til þess verks að teikna upp þær aðgerðir sem nauðsynlegt sé að fara í til lagfæringa á Landeyjahöfn.
Fátt er fegurra en að sigla í nágrenni við Vestmannaeyjar og virða eyjarnar fyrir sér af sjó. Það er stórbrotið að sigla með Herjólfi inn fyrir Ystaklett og sú sýn lætur fáa þá ósnortna sem það gera í fyrsta sinn. Það er því vert að ljúka þessari ræðu á upphafslínum í hinu þekkra þjóðhátíðarlagi þeirra Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í bæ; Heima
Hún rís úr sumarsænum
í silkimjúkum blænum
með fjöll í feldi grænum,
mín fagra Heimaey.

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.