Hlauparinn Mari Järsk verður meðal þátttakenda í Vestmannaeyjahlaupinu sem fram fer á laugardaginn nk. Þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur þátt, en hún hefur þrisvar tekið þátt í The Puffin Run. Skráning í Vestmannaeyjahlaupið fer fram hér.
Mari er gríðarlega reyndur hlaupari og stóð til að mynda uppi sem sigurvegari í Bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa 382 kílómetrum og 57 klukkustundum eftir að hún hóf keppni í maí sl.
Hvað hlaupið sjálft varðar þá verður boðið upp á 5 km og 10 km hlaup. Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 12:30.
Keppnisgögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 6. september í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2007 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og þrjár í kvennaflokki í hvorri vegalengd.
Verðlaun í 10 km
1. sæti 100.000 kr
2. sæti 50.000 kr
3. sæti 25.000 kr
Verðlaun í 5 km
1. sæti 50.000 kr
2. sæti 25.000 kr
3. sæti 15.000 kr
Einnig verða veitt útdráttarverðlaun.
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega: herjolfur.is
Frí rútuferð í boði fyrir þá sem koma með 10:45 ferðinni, frá bryggju upp í íþróttahús.
Allar upplýsingar um mótið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is.
Þú getur líka fylgst með á facebook. Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst