Úrslitin ráðast á toppnum í dag
Eyja_3L2A6269
Eyjamenn fagna marki. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Lokaumferð Lengjudeildar karla fer fram í dag. Spennan er mikil fyrir leiki dagsins, en ÍBV er í bestu stöðunni að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu að ári. Liðið trónir á toppi deildarinnar með 38 stig. Fjölnir er með stigi minna og á líka möguleika að sigra deildina, en þurfa að stóla á að ÍBV tapi stigum.

Eyjamenn eiga útileik gegn Leikni Reykjavík á meðan Fjölnir fer til Keflavíkur, en Keflvíkingar eru í þriðja sæti deildarinnar með 35 stig. Allir leikir dagsins í deildinni hefjast klukkan 14.00. Farin verður hópferð á leikinn í Reykjavík í boði Herjólfs og Ísfélagsins og má búast við að Eyjamenn fjölmenni á völlinn.

Til stendur að hittast á “Álfurinn Hólagarði“ fyrir leik, hita upp og mynda alvöru stemmingu áður en stúkan verður máluð hvít, segir í tilkynningu frá knattspyrnudeild ÍBV sem hvetur stuðningsmenn til að muna eftir góða skapinu. ,,Mætum öll í hvítu og gerum þetta að besta leik sumarsins,” segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Hundrað ára afmæli Jónínu í myndum
Sumarlokanir leikskólanna í Eyjum liggja fyrir
Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.