Hið árlega Kjötsúpukvöld Karlakórs Vestmannaeyja var í Akóges í gærkvöldi og vel mætt eins og vænta mátti. Er þessi skemmtilegi siður gott upphaf á starfsárinu. „Það er hins vegar undir okkur öllum komið hversu gagnlegt og skemmtilegt þetta verður. Það skiptir miklu máli að við mætum vel sjálfir og verum duglegir að bjóða með okkur,“ segir í tilkynningu og svöruðu menn kallinu.
Skorað var á fyrrverandi meðlimi að rifja upp kynnin því það stendur mikið til í vor og er Færeyjaferðin sem búið er að pískra með í næstum áratug komin á dagskrá. Allt fór vel fram og allir skemmtu sér hið besta eins og þessar myndir Óskars Péturs bera með sér.

























Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.