Ingveldur Anna hafði betur gegn sitjandi þingmönnum
Ingveldur Anna Xd Is
Ingveldur Anna Sigurðardóttir. Ljósmynd/xd.is

Ingveldur Anna Sigurðardóttir lögfræðingur og varaþingmaður verður í 3. sæti á framboðlista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar til Alþingis 30. nóvember næstkomandi.

Kjördæmisráðið samþykkti fyrr í dag einróma að viðhafa röðun við efstu 6 sæti á framboðslistanum. Þrír sóttust eftir þriðja sæti, Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, Birgir Þórarinsson, alþingismaður og Ingveldur Anna Sigurðardóttir sem hlaut flest atkvæði.

Áður höfðu þau Guðrún Haf­steind­ótt­ir dóms­málaráðherra og odd­viti flokks­ins í Suður­kjör­dæmi og Vil­hjálm­ur Árna­son, rit­ari Sjálf­stæðis­flokks­ins, verið sjálf­kjör­in í tvö efstu sætin. Guðrún var ein í kjöri um 1. sætið og Vil­hjálm­ur einn í kjöri um 2. sæti.

Nýjustu fréttir

Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.