Glacier Guys gleðja með söng og góðvild
25. desember, 2024
Glacier Guys afhenda kirkjunni peningastyrk fyrir matarsöfnun.

Þeir Hannes Gústafsson, Friðrik Már Sigurðsson og Theodór Sigurbjörnsson, sem kalla sig Glacier Guys, hafa glatt fólk með söng sínum og góðum boðskap. Þeir hafa síðastliðnar vikur verið að safna fyrir og styrkja góð málefni og hafa nú þegar styrkt Landakirkju, Krabbavörn og Kjarnann svo eitthvað sé nefnt. Við fengum að heyra í Hannesi Gústafssyni, einum af meðlimum Glacier Guys. 

„Þetta byrjaði þannig að við vorum bara að syngja og fíflast og leika okkur í vinnunni. Svo færðist þetta yfir í söng í bílnum. Svo bara einu sinni tókum við lag sem hljómaði ágætlega, þannig við ákváðum að taka það upp á símann hans Frikka í gamni og þá bara byrjaði eitthvað.“ 

Viðtökurnar góðar

Söngur þeirra hefur aldeilis undið upp á sig en þeir stigu á svið í fyrsta sinn á kvennakvöldi handboltans, ásamt því að vera leynigestir á Lundaballinu í nóvember síðastliðnum. Viðtökurnar hafa verið afar góðar að sögn Hannesar og bætir við að þeir séu engir atvinnumenn í söng, en að fólk hafi gaman að þessu og að þeir hafi gaman að þessu sömuleiðis. Rúsínan í pylsuendanum sé auðvitað framlag þeirra til góðgerðamála. Fyrirtæki Hannesar, H. Harði hefur tekið að sér hingað til að styrkja góð málefni, en svo tóku strákarnir sig saman og fóru á milli fyrirtækja hér í Eyjum og söfnuðu 1.250.000 krónum. Þeir gáfu kirkjunni eina milljón króna nú fyrir jólin, sem er ætluð til mataraðstoðar, og munu þeir einnig veita 250.000 krónur til stuðnings fötluðum. 

Þakklæti og jólalag í tilefni söfnunarinnar

Strákarnir hafa notið mikils þakklætis frá þeim aðilum sem hafa tekið við styrkjunum sem þeir segja vera einstaklega gefandi. Í tilefni söfnunarinnar ákváðu þeir að flytja jólalag og deildu nýverið myndbandi þar sem þeir syngja jólalagið „Komdu um jólin“ í þýðingu Gunnars Ólafssonar. 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.