Gífurlega ósátt við að vita ekki hvernig þetta mun líta út
Eldfell Tms Lagf
Eldfell. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Um miðjan síðasta mánuð var sett af stað undirskriftasöfnun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Eldfelli. Fram kemur að undirrituð mótmæli fyrirhugaðri röskun á ásýnd, og tilheyrandi kostnaði við gerð listaverks á Eldfelli.

Bjartey Hermannsdóttir er ábyrgðarmaður undirskriftalistans. Aðspurð um hvað hafi orðið til þess að hún ákvað að hefja undirskriftasöfnun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Eldfelli segir hún að hún hafi verið neikvæð gagnvart þessari framkvæmd frá því að hún heyrði um hana fyrst. „En það var svo þegar ég tók eftir umræðunni í kringum mig, að ég ákvað að gera undirskriftalistann.” segir hún í samtali við Eyjafréttir.

Hægt að finna ótal margt annað sem þessum upphæðum hefði verið betur varið í

Nú þegar um einn og hálfur sólarhringur er eftir af söfnuninni hafa tæplega 500 skrifað undir. Er Bjartey er spurð hvort hún sé ánægð með þann fjölda undirskrifta svarar hún því játandi. „Já, nokkuð ánægð, enda bjóst ég ekki við svona góðum viðtökum.”

Hvaða áhyggjur hefur þú helst varðandi áformað listaverk á Eldfelli og hvernig telur þú að það geti haft áhrif á náttúruvernd? 

Að mínu mati á Eldfell að fá að vera að mestu leyti ósnert! Enda er það í sjálfu sér listaverk og minnisvarði um þann stórmerkilega atburð sem varð til þess að það myndaðist. Að setja upplýst bílastæði og göngustíga til að einfalda aðgengi um fellið mun að sjálfsögðu auka ágang til muna með tilheyrandi raski og útlitsmengun. Ég tel það vera skref í ranga átt gagnvart stórbrotinni náttúru okkar hér í Eyjum að setja fordæmi fyrir leyfi fyrir svona umdeildri framkvæmd.

Talsverð leynd hefur ríkt yfir útliti verksins og eins yfir kostnaðinum við framkvæmdina. Hvað finnst þér um það?

Ég er gífurlega ósátt við það að vita ekki hvernig þetta mun líta út, enda list mjög afstæð, og því mikilvægt að vita hvað er verið að samþykkja.

Ég er ekki sátt við að Vestmannaeyjabær hafi samþykkt að standa straum af kostnaði sem falli til við gerð göngustíga og bílastæða m.a., auk þess að greiða listamanninum 50 milljónir. Þessir peningar koma úr sameiginlegum sjóðum okkar bæjarbúa og er ég og fleiri þeirra skoðunar að það hefði verið hægt að finna ótal margt annað sem þessum upphæðum hefði verið betur varið í.

Vonar að tekið verði mark á undirskriftum og boðað til íbúakosningar

Aðspurð um hver skoðun hennar sé á því að listaverk og náttúruvernd fari saman og hvort hægt sé að finna jafnvægi milli þeirra, svarar Bjartey því til að hún sé þeirra skoðunar að list eigi ekki heima mikið í náttúrunni, nema það fari voða lítið fyrir henni.

Nú eru einungis innan við tveir sólarhringar eftir af undirskriftasöfnuninni. Spurð um hver næstu skref verði í málinu, segir hún að listanum verði skilað inn til bæjarstjórnar og næstu skref verði þá hennar. „En vonin er sú að tekið verði mark á undirskriftum og þá boðað til íbúakosningar.”

Er eitthvað sem þú myndir vilja að bæjaryfirvöld eða aðrir sem taka ákvarðanir um þetta mál vissu þegar það kemur að þessari röskun?
Ég hef enga meiri vitneskju eða innsýn en þau, en ég vona að þau hlusti á raddir bæjarbúa og setji þetta í hendur okkar, enda er það það eina rétta í svona stórri og óafturkræfri framkvæmd, segir Bjartey að lokum. Hér má kynna sér undirskriftasöfnunina. Henni lýkur á miðnætti á morgun, miðvikudag.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.