Spáð í spilin fyrir HM karla í handbotla
Sigurður Bragason

HM karla í handbolta hófst formlega í gær með leik Frakklandi gegn Katar í Herning í Danmörku. Eins og mörgum er orðið kunnt spilar Ísland sinn fyrsta leik á fimmtudaginn n.k. gegn Grænhöfðaeyjum. Við hjá Eyjafréttum tókum púlsinn á stuðningsmönnum íslenska landsliðsins í aðdraganda mótsins og ræddum við Sigurð Bragason handboltaþjálfara ÍBV kvenna.

Hvernig telur þú að Íslandi muni ganga í riðlakeppninni? Ég held að þetta verði bara mjög gott. Mér fannst leikirnir við Svía núna fyrir mót sýna að liðið er vel klárt. Mér finnst ekki vera þessi mikla pressa á leikmönnum, væntingum er stillt í hóf og meiri fókus á handbolta. Lítið hefur farið fyrir óraunhæfum kröfum spekinga eins og oft áður. Við erum, eins og oftast í riðlum HM, í nokkuð þægilegum riðli. Liðið ætti vissulega að vinna Kúbu og Grænhöfðaeyjar en svo verður þetta líklega úrslitaleikur við Slóvena um að taka 2 eða 4 stig með sér í milliriðil. Leikurinn við Slóvena er síðasti leikur riðilsins, þannig að við verðum búnir að hrista af okkur allan hroll og komnir á fullt.

Mér fannst varnarleikur liðsins við Svía flottur og markmenn liðsins góðir. Það gefur augaleið að ef Ísland ætlar að ná í topp 8 þá verða þessir hlutir að vera í lagi. Nú erum við með leikmenn sem eru að spila stór varnarhlutverk í sínum félagsliðum sbr. Elvar, Elliði, Janus, Ýmir og Viggó er það líka. Það er svolítið annað en áður, þar sem okkar lykilmenn hafa verið bestu sóknarmenn heims. Við erum áfram með þessa góðu sóknarmenn en ég held að varnarlega séum við sterkari en áður.

Telur þú það muni hafa mikil áhrif á liðið að það vanti nokkra lykilmenn í liðið? Vissulega, en það má ekki gleyma að það glíma öll lið við eitthvað slíkt. Aron hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Íslenska landsliðinu undanfarin ár þannig að ég held að það sé ekki of stórt högg. Okkur munar vissulega um Ómar, en ég held að nú fari Viggó pressulaus inn í þetta mót og neglir það, hann er með Teit með sér sem er toppmaður. Mér finnst Viggó alltaf hafa staðið sig á stórmótum og ég held að það verði líka núna.

Hvaða lið í riðlinum telur þú vera helstu ógnirnar fyrir Ísland? Engin spurning að það mun vera Slóvenar. Þeir eru í svipuðum styrkleika og Ísland, en  Ísland ætti, ef allt verður eðlilegt að fara þægilega í gegnum Grænhöfðaeyjar og Kúbu. Það má þó ekki vanmeta Grænhöfðaeyjar, þeir eru með marga frábæra handboltamenn.

Úrslitaleikurinn verður að öllum líkindum við Slóvena, og í raun mikilvægasti leikur mótsins. Því sigur þar gefur okkur væntalega leyfi á eitt tap í milliriðli til að komast í 8 liða úrslit.

Hverjir eru helstu styrkleikar íslenska landliðsins að þínu mati? Ísland alltaf verið heimsklassa sóknarlið, við höfum notið góðs af samvinnu Gísla, Ómars og Janusar. Það verður spennandi að sjá hvort Viggó nái Ómars ,,standard”. En eins og ég nefndi fyrr þá held ég að varnarleikur liðsins verði sterkur og jafnvel sterkari en oft áður á þessum mótum.

Þetta er samt alltaf sama lumman, og það er markvarslan. Ef að Ísland nær 30% + í markvörslu að jafnaði þá fer Ísland í undanúrslit. Sjáið til!

Hvernig finnst þér að sjá Elliða Snæ Viðarsson sem fyrsta Eyjamannin til að vera fyrirliði íslenska landsliðsins? Auðvitað svakalega skemmtilegt. Við getum verið ákaflega stolt af okkar manni, hann ber þetta með sóma enda frábær liðsmaður og skemmtilegur gaur. Ég hef bullandi trú á Elliða, að hann muni eiga gott mót.

Nýjustu fréttir

Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.