Hætta rann­sókn á skip­verjunum Hugins VE
Huginn VE er hann kom að bryggju umrætt kvöld í nóvember 2023. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Lögreglan hefur fellt niður rannsókn á máli skipverja Hugins VE vegna skemmdar á vatnsleiðslu og ljósleiðarastreng í innsiglingunni til Eyja í nóvember 2023. Hættuástand almannavarna varð í Vestmannaeyjum við skemmdirnar. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins.

Þrír skipverjar á Hugin, skipstjóri, yfirstýrimaður og yfirvélstjóri fengu réttarstöðu sakbornings við rannsókn málsins og samdi útgerðin um starfslok skipstjóra og stýrimanns. Fram kemur í fréttinni að lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hafi lokið rannsókn á þætti skipverjanna þriggja.

Haft er eftir Jóhanni Péturssyni, lögmanni yfirstýrimanns skipsins að niðurstaðan sé sú að lögreglan hafi fellt málið niður og taldi ekki að um refsiverða háttsemi væri að ræða af hálfu umbjóðanda hans eða annarra í þessu máli.

Spurður hvort allir þrír skipverjarnir lausir allra mála hvað þetta varðar, svarar Jóhann því játandi.  „Að því að ég best veit þá var málið fellt niður og ekki talið að um refsiverða háttsemi væri að ræða.“

 

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.