52.000 nýir Vestmannaeyingar og stærsta hótelkeðja í heimi
Óhætt er að segja að nýja árið byrji með látum.
Í síðustu viku greindi Viðskiptablaðið frá því að World Class væri í viðræðum við Vestmannaeyjabæ um að reka heilsurækt við sundlaugina í Vestmannaeyjum. Þetta eru aldeilis ánægjulegar fréttir og í raun miklu stærri fréttir en margir gera sér grein fyrir. En afhverju skildi það vera?
Fyrir þá sem hafa kynnt sér uppgang World Class síðustu árin og séð hvernig þeir hafa byggt upp sína heilsurækt í samstarfi við sundlaugar bæjarfélaga með miklum myndarbrag, hafa séð hversu mikil lyftistöng slík opnun hefur í för með sér, dæmi um þetta er opnun World Class í Breiðholti, Mosfellsbæ og svo mætti lengi telja.
Stóra breytan sem allir átta sig kannski ekki á, er sú að meðlimir World Class eru 52.000 talsins eða yfir 10 sinnum fleiri en íbúafjöldi Vestmannaeyja !!!
Óhætt er að fullyrða að með komu Vestmannaeyja inní leiðarkerfi World Class munu margir sjá enn frekar hag sinn í að koma til Eyja, ekki ósvipað og myndi gerast ef erlend hótelkeðja kæmi til Eyja.
Koma World Class má svolítið líkja við að Starbucks mætir á svæðið. En þessir aðilar eru þekktir fyrir að velja svæði sem eru í örum vexti.

Þetta hljóta því að teljast mikil og jákvæð tíðindi og stimplar eyjarnar enn frekar inn sem eftirsótt markaðssvæði.
En talandi um erlenda hótelkeðju. Nýlegar fréttir eru svo ekki að skemma fyrir en fyrir stuttu var tilkynnt um að Hótel Selfoss hafi verið breytt í Mariott hótel sem er stærsta hótelkeðja í heimi. En hvað skiptir það Vestmanneyja máli, jú félagið JAE ehf sem keypti Hótel Selfoss 2022 keypti einmitt Hótel Vestmannaeyjar sama ár og í framhaldinu eignir Kaldalóns í Vestmannaeyjum.
Það skyldi þó ekki vera að Hótel Vestmannaeyjar verð innan skamms nýjasta Marriott hótelið?
Eða eins og kom fram hjá framkvæmdastjóra JAE ehf.:
„Þá segir hún einnig að það verði skoðað hvort fleiri hótel í eigu JAE ehf geti orðið Marriott hótel. JAE ehf á til dæmis Hótel Vestmannaeyjar.“
Það þarf ekkert velta því mikið fyrir sig hve mikil lyftistöng það yrði fyrir ferðaþjónustuna og bæjarfélagið í heild að fá stærstu hótelkeðju í heimi til Eyja. Það eru svo sannarlega spennandi hlutir framundan.
Litla Mónakó – kannski bara!
Jóhann Halldórsson





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.