Góð stemning á fundi Guðrúnar
Guðrún í góðum hópi fundargesta. Unnur, Guðrún, Ríkharður og Bergsteinn.

Um fimmtíu sóttu fund Guðrúnar Hafsteinsdóttur formannsframbjóðanda í Sjálfstæðisflokknum sem haldinn var fimmtudagskvöld s.l. í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Guðrún tilkynnti framboð sitt til formanns fyrir tveimur vikum síðan og hefur síðan ferðast um landið og kynnt sína sýn á framtíð flokks síns.

Guðrún kom inn á þing í þar síðustu kosningum til Alþingis sem oddviti flokksins í Suðurkjördæmi. Hún gegndi stöðu dómsmálaráðherra frá árinu 2023 og þar til núverandi ríkisstjórn tók við keflinu í lok síðasta árs. Kosið verður til formanns Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi sem fer fram næstu helgi í Laugardalshöll í Reykjavík.

Mikil stemning var á fundi Guðrúnar og er ljóst að spennan fer vaxandi fyrir komandi Landsfundi. Góðar og miklar umræður sköpuðust um málefni, stöðu Sjálfstæðisflokksins og framtíðarsýn.

Guðrún er þriðja konan sem gefur kost á sér til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Sú fyrsta var Hanna Birna Kristjánsdóttir og önnur var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Sú staða er því nú uppi í Sjálfstæðisflokknum, að svo gott sem öruggt má telja að næsti formaður flokksins, sá tíundi í röðunni, verði fyrsta konan til að gegna embættinu. Þá má geta þess að af þeim níu einstaklingum sem gegnt hafa embætti formanns Sjálfstæðisflokksins, hefur aðeins einn þeirra komið úr landsbyggðarkjördæmi.

Guðrún á spjalli við Magnús Kristinsson.

 

Hluti fundargesta.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi
Handhafar Frétta-píramída 1992-95
ÍBV sækir ÍR heim
Siglt til Þorlákshafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.