4,5 milljarða rekstrarhagnaður
Stefan Fr IMG 4182
Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Rekstrartekjur Ísfélagsins námu í fyrra 23,6 milljörðum króna, rekstrarhagnaður var 4,5 milljarðar króna og var hagnaður eftir skatta 2,2 milljarðar króna. Var EBITDA 6,6 milljarðar króna. Þetta kemur fram í ársreikning Ísfélagsins sem sendur var ásamt tilkynningu til Kauphallarinnar í dag.

Sé staða á efnahag félagsins í lok ársins 2024, færð í íslenskar krónur á lokagengi ársins (138,2), eru heildareignir 107,5 milljarðar króna, fastafjármunir 94,4 milljarðar króna og veltufjármunir 13,1 milljarður króna. Eigið fé í lok árs 2024 var 76,1 milljarður króna og skuldir og skuldbindingar 31,4 milljarðar króna.

Samdráttur vegna aflabrests í loðnu og vegna lélegrar makrílveiði

Haft er eftir Stefáni Friðrikssyni forstjóra Ísfélagsins í tilkynningunni að töluverður samdráttur hafi verið í rekstri félagsins á árinu 2024 sem skýrist að mestu leyti vegna aflabrests í loðnu á síðastliðnum vetri og lélegrar makrílveiði í sumar. Nauðsynlegt er að rannsaka betur loðnustofninn sem er svo mikilvægur í vistkerfi hafsins hér við land og reyna að fá svör við því hvers vegna hann skilar sér ekki betur af fjalli ef svo má að orði komast. Horfurnar eru aftur á móti góðar fyrir næstu vetrarvertíð og miklar líkur á upphafskvóta en sagan segir okkur, því miður, að þar sé ekki á vísan að róa.

Veiðar og vinnsla á síld gengu vel á árinu. Góð eftirspurn var á mörkuðum fyrir afurðir félagsins og verð á frosnum og ferskum afurðum hækkaði. Verð á fiskimjöli var ágætt á árinu en verð á lýsi lækkaði.

Umtalsverðar fjárfestingar í fyrra

Þá segir Stefán að frystitogarinn Sólberg hafi skilað góðri afkomu á árinu og var aflahæsta bolfiskskip landsins. Sigurbjörg, nýr ísfisktogari félagsins, hóf veiðar um miðjan ágúst en skipið leysir þrjú eldri skip af hólmi.

Fiskvinnslu félagins í Þorlákshöfn var lokað í haust. Ástæðurnar eru, eins og áður hefur komið fram, annars vegar að ekki eru nægar aflaheimildir fyrir hendi og hins vegar aflabrestur í humarveiðum.

Afli skipa félagsins var um 78.500 tonn og framleiddar afurðir voru um 32.600 tonn. Mjöl- og lýsisframleiðsla var tæp 14.400 tonn.

Umtalsverðar fjárfestingar voru á árinu.  Smíði ísfisktogarans Sigurbjargar lauk í Tyrklandi, félagið keypti Pathway, uppsjávarskip frá Skotlandi, sem afhent verður í maí á þessu ári. Þá hófst undirbúningur að stækkun á fiskimjölsverksmiðju félagsins í Vestmannaeyjum og bygging nýrrar frystigeymslu á Þórshöfn.

Hækkun kolefnisgjalds um 60% um síðustu áramót er sérstakt umhugsunarefni

Félagið undirritaði lánasamning að fjárhæð 220 milljónir evra við hóp banka í lok janúar á þessu ári. Lánið er til fimm ára með 25 ára afborgunarferli og var nýtt til að endurfjármagna öll vaxtaberandi lán og styrkja lausafjárstöðu félagsins og aðgang að lánsfjármögnun í framtíðinni.

Innlendur kostnaður hefur hækkað umtalsvert, þ.m.t. laun og orkukostnaður. Hækkun kolefnisgjalds um 60% um síðustu áramót er sérstakt umhugsunarefni í ljósi þess að ekki eru aðrar leiðir færar en að notast við jarðefnaeldsneyti í rekstrinum og hækkun þessa sérstaka skatts því enginn hvati til orkuskipta eins og var og er tilgangur laganna sem skattlagningin byggist á. Fyrir liggja einnig áform um innleiðingu reglna um breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir, þar sem til stendur að útvíkka það enn frekar (ETS2). Slík áform munu auka kostnað við framleiðslu á fiskimjöli og lýsi. Er því verið að auka á kostnað við framleiðslu, án þess að aðgengi að raforku til reksturs sé tryggt.

Áform um að slátra mjólkurkúnni

Stjórnvöld hafa lagt fram frumvarp um gríðarlega hækkun á veiðigjöldum þrátt fyrir að ljóst sé að afkoma greinarinnar megi ekki við frekari kostnaðarhækkunum þegar tekið er tillit til nauðsynlegra fjárfestinga og eðlilegrar afkomu greinarinnar. Engar tilraunir hafa verið gerðar til að skoða áhrif þessara skattahækkana á  atvinnugreinina og samkeppnishæfni hennar. Hærri skattar á fyrirtæki minnka möguleika þeirra á að fjárfesta í betri rekstri og draga úr getu fyrirtækja til að gera betur. Þarna eru því áform að slátra mjólkurkúnni.

Fyrir liggur að sjávarútvegsráðherra ætlar að fjölga strandveiðidögum upp í 48. Því hefur verð heitið að það verði gert án þess að skerða heimildir annarra útgerðaraðila. Gangi þessi áform eftir mun þorskaflinn innan fárra ára aukast langt fram úr veiðiráðgjöfinni og það er ekki farsælt ef markmiðum um sjálfbærar veiðar er varpað fyrir róða, segir Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins.

Þessu tengt: Stóra hættan að við missum það forskot sem við höfum haft

Nýjustu fréttir

Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Nám sem tengir saman skóla, atvinnulíf og samfélag
Draumar æskuáranna rættust
ÍBV tapaði toppslagnum gegn Val
Handverksmenn sýna í Einarsstofu
Samninganefnd skipuð vegna endurskoðunar á Herjólfssamningi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.