Skekkjan blasti við!
Mynd/samsett

Veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefur verið harðlega gagnrýnt síðustu mánuði. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gagnrýndu í upphafi málsins að sýndarsamráð hafi átt sér stað, aðeins vika hafi verið gefin til umsagna og að ekki hafi fengist gögn afhent frá ráðuneytinu til að átta sig á útreikningum frumvarpsins. 

59% hækkun reyndist 120%

Veiðigjald á þorski á þessu ári nemur 29 kr/kg en í útreikningum sem fylgdu frumvarpinu hefði það verið 46 kr/kg ef frumvarpið væri í gildi fyrir þetta ár. Erfitt reyndist að endurtaka útreikning ráðuneytisins og fá fram þessa niðurstöðu og höfðu hagsmunaaðilar því óskað eftir excel skjölum ráðuneytisins. Þannig áætlaði SFS að veiðigjald á þorski fyrir þetta ár hefði orðið 62 kr/kg en byggði það á takmörkuðum gögnum. 

Nýlega komu fram útreikningar Skattsins sem atvinnuveganefnd óskaði eftir, en Skatturinn hefur öll gögn fyrir útreikninginn. Niðurstaða Skattsins var að veiðigjald þorsks hefði orðið 64 kr/kg ef frumvarpið væri í gildi fyrir þetta ár. Einnig munaði umtalsvert á útreikningi á ýsu. 

Atvinnuvegaráðherra hafði því kynnt áhrif frumvarpsins sem 59% hækkun á þorski en hækkunin reyndist 120%. 

Þegar skekkjur verða að „mismunandi forsendum“

Í fréttatilkynningu sem atvinnuvegaráðherra sendi í vikunni birtist þessi langloka: 

Við meðferð frumvarpsins hjá atvinnuveganefnd Alþingis kom í ljós að ekki var samræmi milli þeirra sem lögðu fram mat á grundvelli eigin útreikninga á áhrifum þeirra breytinga sem frumvarpið gerði ráð fyrir. Það skýrðist af því að mismunandi forsendur voru gefnar fyrir útreikningunum og að ólík gögn voru notuð við hann. Inn í tiltekna útreikninga vantaði ákveðnar forsendur frá Fiskistofu, sem leiddi til skekkju í niðurstöðu. 

Þessi útskýring, sem er auðvitað vel valið orðasalat sem gæti vel komið úr bókinni 1984, staðfestir að skekkjur hafi verið í útreikningi ráðuneytisins. Þessar skekkjur blöstu við þeim sem þekktu til og hefðu komið fyrr fram ef Hanna Katrín hefði birt útreikningana sem kallað var eftir. Það kann þó ekki að vera að ráðuneytið hafi vitað af því að skekkjur voru í útreikningnum og því neitað að birta hann? 

Á Alþingi reyndi Kristún Frostadóttir að rugla ringlaðan enn frekar og tala um að enginn vissi hvað veiðigjaldið verði á næsta ári (2026); ekki ráðuneytið, skatturinn né Fiskistofa. En útreikningurinn átti við um þetta ár, og allar forsendur voru fyrir hendi til að reikna veiðigjaldið fyrir 2025. 

Vestmannaeyjabær, orkuráðuneytið og nú atvinnuvegaráðuneytið

Eyjafréttir hafa staðið í stappi upp á síðkastið, bæði við Vestmannaeyjabæ og ráðuneyti varðandi upplýsingaskyldu og kært mál til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem hefur dæmt Eyjafréttum í hag. 

Það væri óskandi ef kjörnir fulltrúar tækju upplýsingaskyldu sína alvarlega og sýndu þá auðmýkt að veita skýr, greinargóð og jafnvel frekar matarmikil svör í stað útúrsnúninga, orðasalats eða svara engu og afhenda ekkert. 

Nýjustu fréttir

Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.