Aflinn var 64 tonn
sjomadur_bergey_opf_22
Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði í Eyjum í fyrrakvöld. Aflinn var 64 tonn, mest þorskur og ýsa. Jón Valgeirsson skipstjóri sagði í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar að þetta hafi ekki verið nein frægðarför en þó sé allt í lagi og engin ástæða til að kvarta mikið.

„Við vorum mest á Hvalbakssvæðinu en restuðum á Víkinni. Það var norðan eða norðaustan kaldadrulla mestallan túrinn. Við vildum leggja áherslu á ýsu að þessu sinni en hún er sannast sagna hálferfið núna. Hún kemur á endanum, lætur líklega sjá sig þegar síldin hrygnir. Það er venjulega þannig,” sagði Jón. Ennfremur var haft eftir honum að þeir hafi haldið til veiða á ný í gærkvöldi og átti hann von á að fara eitthvað austureftir.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.