Yfirlýsing hafnarstjóra Vestmannaeyjahafnar og framkvæmdastjóra Herjólfs
20230728 162402
Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Undirrituð eru sammála um mikilvægi þess að komu- og brottfarartímar almenningssamganga við Vestmannaeyjar standist. Eðlilega getur margt haft áhrif á áætlun Herjólfs, þar á meðal önnur skipaumferð um Vestmannaeyjahöfn. Það varð tilefni þess að framkvæmdastjóri Herjólfs fór þess á leit við hafnarstjóra að tekin verði upp sú regla að Herjólfur njóti forgangs í siglingum innan Vestmannaeyjahafnar.

Erfitt er að verða að fullu við því skv. siglingalögum og siglingareglum. Höfum við því komist að þeirri niðurstöðu að Herjólfi verði veittur slíkur forgangur með þeim fyrirvara að gagnkvæmur skilningur sé á að upp geta komið óhjákvæmileg atvik sem munu hafa áhrif á siglingar Herjólfs innan Vestmannaeyjahafnar.  Hér eftir sem hingað til leggjum við jafnframt mikla áherslu á að samskipti skipstjórnarmanna Herjólfs og starfsmanna Vestmannaeyjahafnar verði lausnamiðuð og góð í oft krefjandi aðstæðum.

Gleðilega Goslokahátíð,

 

Dóra Björk, hafnarstjóri  og Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf.

 

Nýjustu fréttir

ÍBV í lykilstöðu eftir sigur gegn Haukum
Dagskráin á sumardaginn fyrsta
Tilboð upp á 480 milljónir í Ægisgötu 2
Barnamenningardagar settir í dag
Efri árin skipta máli
Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
Eldsneytisvandi í Eyjum
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.