Mótorhjól, málverk, skúlptúrar og konur og gosnóttin
Guðrún og Gylfi, maður hennar með fjölskyldunni í Akóges.

Á morgun, sunnudag verður Guðrún Erlingsdóttir, móðir Bjarteyjar með erindi í Sagnheimum kl. 13.00

Það verður nóg að gera um goslokahelgina hjá hjónunum Bjarteyju Gylfadóttur og Sæþóri Gunnarssyni en þau opnuðu sameiginlega sýningu undir heitinu Myndlist og mótorhjól í gær í Akóges.

Þar sýnir Sæþór mótorhjól sem hann á og hefur gert uppi nokkur þeirra. Bjartey er með sölusýningu á málverkum og skúlptúrum sem er nýlunda hjá henni.

Á morgun, sunnudag verður Guðrún Erlingsdóttir, móðir Bjarteyjar með erindi í Sagnheimum kl. 13.00 þar sem hún flytur erindið Konur og gosnóttin. Erindið byggir hún upp á viðtölum við konur af upplifun þeirra gosnóttina og fer lítillega yfir afleiðingarnar.

Að erindi loknu mun Guðrún gefa gestum í sal kost á að tjá sig um upplifun þeirra af gosnóttinni. Guðrún hefur safnað frásögnum af upplifun, lífi og líðan íbúa vegna eldgossins 1973 síðastliðin sjö ár. Hún segir nauðsynlegt að safna eins mikið af sögum um hægt á meðan þeir sem upplifðu gosið eru enn til frásagnar.

 

Guðrún Erlingsdóttir.

 

Eitt af málverkum Bjarteyjar sem eru á sýningunni.

 

Mótorhjólasafnið hans Sæþórs.

 

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.