Strandveiðum er lokið
20250505_154451
Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

„Auglýsing um stöðvun strandveiða mun birtast í stjórnartíðindum síðar í dag þar sem fram kemur að strandveiðar eru bannaðar frá og með 17. júlí.” Framangreindur texti birtist síðdegis í dag á vefsíðu Fiskistofu. Það er því ljóst að strandveiðitímabilinu þetta árið er lokið en strandveiðifrumvarp atvinnuvegaráðherra náðist ekki að afgreiða á Alþingi. Frumvarpið var lagt fram svo tryggja mætti smábátasjómönnum rétt til 48 daga strandveiða.

Í frétt sem birtist á vef Fiskistofu fyrr í dag segir að í dag sé síðasti dagur strandveiða ag öll strandveiðileyfi falli því niður frá og með morgundeginum og er skipum þá heimilt að halda til veiða ef þau eru með almennt veiðileyfi. Ef skip var í núllflokki áður en það fékk strandveiðileyfi þarf að sækja um almennt veiðileyfi áður en haldið er til veiða á ný. Hægt er að skoða hvort skip sé með veiðileyfi á vefsíðu Fiskistofu undir skipaleit en athugið að strandveiðileyfið gæti verið inni í nokkra daga þrátt fyrir að búið sé að fella það úr gildi.

Þeir aðilar sem eiga rétt á byggðakvóta og vilja fá úthlutað eftir að strandveiðum lýkur er bent á að senda beiðni þess efnis á byggdakvoti@fiskistofa.is og óska eftir úthlutun. Öllum erindum verður svarað og reynt verður að bregðast við eins fljótt og kostur er á, en töluvert álag er á starfsfólki Fiskistofu við úthlutun byggðakvóta við lok strandveiða.

Athugið að staða mótframlags á gagnasíðu Fiskistofu kann að vera vantalið þar sem skil á vorskýrslum júní mánaðar eru ekki fyrr en 20. júlí næsktomandi. Sjái útgerðaraðili fram á að þurfa fá byggðakvóta úthlutuðum fyrir þann tíma og telji sig uppfylla kröfu um mótframlag en staðan vantalin í gögnum Fiskistofu bendum við þeim á að hafa samband við vinnsluaðila.

Nýjustu fréttir

Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.