Herjólfsfólk er í hátíðarskapi
Ólafur Jóhann, fyrrum prestur í Seljakirkju tók við sem framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. í byrjun árs.

Að sögn Ólafs Jóhanns Borgþórssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs, eru dagarnir í kringum og yfir þjóðhátíðina mjög líflegir hjá starfsfólki Herjólfs. „Það má segja að undirbúningur þjóðhátíðarinnar hjá okkur á Herjólfi standi yfir í marga mánuði, áður en miðasalan hófst í febrúar var búið að ganga þannig frá málum að heimasíðan þoli álagið sem myndast um leið og salan á þjóðhátíðar opnar.“

Ólafur segir fjölda fólks úr ólíkum áttum koma að farþegaflutningum í kringum verslunarmannahelgina: „Auk starfsfólks og áhafnar Herjólfs fáum við meðlimi Björgunarsveitarinnar Bjargar á Eyrarbakka til að stýra umferðinni í Landeyjahöfn og græja töskubílinn, starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar til að sjá um öryggisgæslu um borð í skipinu og svo stýrir Silli Þórarins allri bílaumferð hér á mánudaginn, auk þess erum við í góðu samstarfi við starfsmenn Vestmannaeyjahafnar, áhaldshússins ýmsa þjónustuaðila og auðvitað þjóhátíðarnefnd ÍBV.“

 

Herjólfur á leið úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja.

 

Látum gleðina, vináttuna og kærleikann leiða okkur

Aðspurður segir Ólafur þetta skemmtilega vertíð: „Ég er að sjá þetta í fyrsta sinn sem starfsmaður Herjólfs og það er svo gaman að sjá að allt gengur þetta eins og smurð vél og allir þekkja sín hlutverk mjög vel og nú síðustu dagana hefur þjóðhátíðarstemningin aukist jafnt og þétt, það eru allir í þjóðhátíðarskapi.

Aðspurður um veðurspána segist Ólafur ekki kvíða neinu. „Veðrið lítur ekki út fyrir að verða sérlega hagstætt, auðvitað getur orðið eitthvað jask –  en fólk er hingað komið til þess að skemmta sér fallega og þá breyti engu hvort von sé á sólskini eða rigningu.

Ég óska öllum gleðilegrar þjóhátíðar, látum gleðina, vináttuna og kærleikann leiða okkur áfram og búum til dásamlega minningar um helgina sagði Ólafur í lokin.

 

Nýjustu fréttir

Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.