Fagna úttekt á Landeyjahöfn

Staðan í samgöngumálum var rædd í bæjarráði í hádeginu. Rædd var nýsamþykkt þingsályktunartillaga um úttekt í Landeyjahöfn. Samkvæmt tillögunni er miðað við að henni verði lokið eigi síðar en 31. ágúst 2020. Um er að ræða óháða úttekt á höfninni svo að unnt sé að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að tryggja heilsárshöfn í Landeyjum. Úttektin mun ekki einskorðast við dýpi Landeyjahafnar. Litið verður til þeirrar reynslu sem komin er af siglingu nýs Herjólfs í Landeyjahöfn til athugunar á því hvaða aðrir þættir, svo sem samspil vinda og sjólags, gætu takmarkað nýtingu hafnarinnar. Þá þyrfti að gera tillögur að úrbótum reynist svo vera.

Fagna úttektinni
Niðurstaða bæjarráðs var eftirfarandi: Bæjarráð fagnar því að Alþingi skuli hafa samþykkt að ráðast í óháða úttekt á Landeyjahöfn og skorar á samgönguráðherra að hefja hana sem fyrst, enda gert ráð fyrir að niðurstöður úttektarinnar liggi fyrir í lok næsta sumars.

Löngu tímabært
Meirihluti bæjarráðs fagnar nýsamþykktri þingsályktunartillögu í bókun sinni og lýsir yfir ánægju að hún komi til framkvæmda. Úttektin er löngu tímabær þar sem frá 2010 hefur ýmsu verið ábótavant og núverandi meirihluti í bæjarstjórn lagt ríka áherslu á að bætt verði úr. Landeyjahöfn er og verður mikilvæg samfélaginu í Vestmannaeyjum. Meirihluti þakkar þeim þingmönnum Suðurkjördæmis sem komu að þingályktunartillögu og þeim þingmönnum sem studdu hana, segir í bókun meirihlutans.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins fagnar samþykkt þingsályktunartillögu um úttekt á Landeyjahöfn og bindur vonir við að með nýrri ferju og bættum skilyrðum í Landeyjahöfn haldi höfnin áfram að vera sú samgöngubylting sem hún hefur verið samfélaginu og þakkar þingheimi samþykkt hennar.

Nýjustu fréttir

Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi
Staðan í Landeyjahöfn
Vestmannaeyjahöfn, lífæð samfélagsins
Sæunn Magnúsdóttir er tilbúin í slaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.