Opna aðgang að vefsjá með íslenskum sjókortum

Landhelgisgæslan opnaði í gær aðgang að vefsjá með íslenskum sjókortum. Stofnunin hefur á liðnum mánuðum átt í góðu samstarfi við Landmælingar Íslands og notið liðsinnis starfsmanna Landmælinga við að hrinda þessu verkefni í framkvæmd.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Eydís Líndal, forstjóri Landmælinga Íslands, gerðu með sér samning í fyrra sem fól í sér samstarf stofnananna um aukið aðgengi almennings að rafrænum kortaupplýsingum og endurbættum kortagögnum af strandlínu landsins.

Opnun kortavefsjárinnar er liður í þessu aukna samstarfi. Vefsjána má finna hér: http://gis.lmi.is/sjokort/ Sjókortin sem þar eru aðgengileg eru rastamyndir af íslensku sjókortunum eins og staðan var á útgáfunni á miðju þessu ári. Tekið skal fram að sjókortin í vefsjánni eru ekki leiðrétt samkvæmt Tilkynningum til sjófarenda.

Það er von Landhelgisgæslunnar og Landmælinga Íslands að samfélagið hafi bæði gagn og gaman af þessum aukna aðgangi að sjókortum.

lhg.is greindi frá

Nýjustu fréttir

ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Vel heppnað námskeið í Hvíta húsinu
Loðnuvertíðin líflína fyrir japanskan markað 
Elliði með stórleik gegn Kiel
Laxey – Metnaðarfull uppbygging sem styrkir atvinnulíf og framtíð samfélagsins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.