Kia EV3 bíll ársins 2025 hjá World Car Awards
Kia EV3 hefur sópað að sér verðlaunum á heimsvísu og var t.a.m. valinn bíll ársins 2025 hjá World Car Awards og vann hönnunarverðlaun Red Dot. Myndir: Daniel Rasmussen. 

Hinn alrafmagnaði Kia EV3 var frumsýndur á Íslandi í ársbyrjun 2025. Það er óhætt að segja að síðan þá hafi Kia EV3 slegið í gegn hér á landi en hann er sem stendur næstmestseldi bíllinn í almennri notkun á Íslandi 2025. Kia EV3 hefur sópað að sér verðlaunum á heimsvísu og var t.a.m. valinn bíll ársins 2025 hjá World Car Awards og vann hönnunarverðlaun Red Dot, ein þau stærstu í heiminum, fyrir bestu hönnun. Kia EV3 er fáanlegur í 5 útfærslum hér á landi og er væntanlegur fjórhjóladrifinn á næsta ári (2026).

Margverðlaunaður 

„Kia EV3 kemur með sömu tækni og Kia EV9 og er því með tækni sem finnst vanalega í stærri rafjeppum. Það má til gamans geta að Kia EV9 náði ótrúlegum áfanga 2024 þegar hann var valinn bæði bíll ársins og rafbíll ársins hjá World Car of the Year. EV3 státar af framúrstefnulegri ytri hönnun ásamt hagnýtu og rúmgóðu innanrými sem er hannað til að hámarka notagildi,“ segir Kristmann F. Dagsson, sölustjóri Kia Íslandi hjá Öskju sem er umboðsaðili Kia hér á landi. 

Drægni er allt að 605 km og hleðsla í 10 til 80% næst á einungis 31 mínútu sem er afar hentugt í daglegri notkun. Með Vehicle-to-Load (V2L) tækni er hægt að nýta orku EV3 fyrir raftæki eða hleðslu utan bíls. Eins og t.d. kaffivél eða rafhjól. 

Mælaborð EV3 skiptist í þrefaldan breiðskjá sem felur í sér 12,3″ margmiðlunarskjá, 5,3″ snertiskjá fyrir loftkælingu og 12,3″ LCD mælaborð. Farþegi í framsæti hefur aðgang að margvíslegri afþreyingu eins og Youtube eða Netflix. 

Auk þess er EV3 útbúinn gervigreindaraðstoð (AI Assistant), akstursaðstoðarkerfum (ADAS) og OTA hugbúnaðaruppfærslum, sem bæta upplifun eigenda.

Helstu upplýsingar 

EV3 er 4,3 metrar á lengd, 1,85 metrar á breidd, 1,56 metrar á hæð og hjólhafið er 2,68 metrar. Farangursrýmið er 460 lítrar. 

EV3 fæst bæði með 58,3 kWh (standard range) og 81,4 kWh rafhlöðu. EV3 notast við 150kW / 283Nm rafmagnsmótor sem gerir honum kleift að komast frá 0 upp í 100 á 7,5 sekúndum. Hámarkshraði bílsins er 170 km á klst. 

EV3 er fáanlegur í níu litum og þar af eru 4 sérstaklega búnir til hjá Kia fyrir EV3 línuna.

Drægni er allt að 605 km og hleðsla í 10 til 80% næst á einungis 31 mínútu.

Að keyra Kia EV3 

„Einfalt og notendavænt viðmót eykur getu ökumanns til að halda höndum við stýrið og einbeitingu á veginum framundan. Hægt er að stjórna fjölmörgum aðgerðum með einni snertingu á stýrihnöppum, þar á meðal akstursstillingu, hraðastilli, tónlist og leiðsögn. Fleiri hnappar, samþættir fyrir neðan miðskjáinn veita stjórn á aðgerðum eins og korti, tónlist og uppsetningu annarra kerfa,“ segir Kristmann.  

„Handhægur miðjustokkur aðskilur ökumanns- og farþegarými að framan. Miðjustokkurinn inniheldur renniborð og geymslusvæði, sem hægt er að stilla eftir þörfum farþega. Neðra svæðið er hægt að nota til að geyma drykki, snarl og jafnvel litla bakpoka. Vel er hægt að nota miðjustokkinn undir fartölvu og önnur raftæki þegar bíllinn er kyrrstæður eða í hleðslu.“ 

Ánægjulegri rafmögnuð upplifun – Aðgengileg fyrir alla. 

Hægt er að velja um 5 útfærslur af EV3 hjá Kia á Íslandi og umboðsaðilum Kia um land allt en EV3 er væntanlegur fjórhjóladrifinn á næsta ári. 

  • Kia EV3 Air Standard Range: 6.190.777 kr. - Með rafbílastyrk 5.290.777 kr. 
  • Kia EV3 Air: 6.890.777 kr. - Með rafbílastyrk 5.990.777 kr. 
  • Kia EV3 Earth: 7.190.777 kr. - Með rafbílastyrk 6.290.777 kr. 
  • Kia EV3 Luxury: 7.790.777 kr. - Með rafbílastyrk 6.890.777 kr. 
  • Kia EV3 GT-Line: 8.490.777 kr. – Með rafbílastyrk 7.590.777 kr. 

 

Nýjustu fréttir

Styttist í að sundlaugin opni
Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Flugútboð til Eyja
Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.