Baldur siglir til Þorlákshafnar seinni partinn í dag þar sem enn er ófært til siglinga fyrir ferjuna í Landeyjahöfn. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Þar segir jafnframt að hvað varði siglingar á morgun, sunnudag þá er stefnt á að Baldur sigli til Landeyjahafnar skv. eftirfarandi áætlun: Brottför frá Vestmannaeyjum kl 07:00, 09:00, 11:00, 12:00, 13:00, 16:00, 18:00, 20:00, 22:00. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 08:00, 10:00, 12:00, 14:00, 17:00, 19:00, 21:00, 23:00.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst