Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri ferð dagsins þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna veðurs og aðstæðna í höfninni. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45.
Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni (Landeyjahöfn/Þorlákshöfn). Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.
Hvað varðar siglingar seinnipartinn í dag, verður gefin út tilkynning kl. 15:00, segir í tilkynningu frá skipafélaginu.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst