Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gær var rætt ítarlega um samgöngumál, bæði sjóleiðina sem og flug, og þær áskoranir sem blasa við í þjónustu við íbúa og gesti.
Herjólfur kom úr slipp í Hafnarfirði til Eyja í gær (í fyrradag) og hóf áætlunarsiglingar á ný í (gær)morgun. Breiðafjarðarferjan Baldur leysti af á meðan á slipptöku stóð. Siglingar Baldurs til Landeyjahafnar gengu ágætlega, en burðargeta skipsins er lítil og aðstaða um borð ekki fullnægjandi, sérstaklega þegar siglt er til Þorlákshafnar. Þar skortir meðal annars kojur fyrir farþega og skipið stenst ekki sömu ölduhæð og Herjólfur, sem leiddi til þess að fella þurfti niður nokkrar ferðir í síðustu viku vegna veðurs.
Bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Herjólfs funda með Vegagerðinni á morgun, miðvikudag um stöðu siglinga og bæjarstjóri hefur jafnframt óskað eftir fundi með innviðaráðherra um framtíðarskipulag samgangna við Eyjar.
Vegagerðin vinnur að heildarskoðun á innanlandsflugi fyrir innviðaráðuneytið og hafði áætlað að skila niðurstöðum 1. september næstkomandi. Samkvæmt núverandi áætlun hefst áætlunarflug 1. desember og stendur til febrúarloka. Fundur með fulltrúum þeirra sveitarfélaga sem málið snertir verður haldinn í vikunni þar sem næstu skref verða rædd.
Bæjarráð telur ljóst að Baldur geti ekki leyst Herjólf af til Þorlákshafnar við erfiðar aðstæður og ítrekar nauðsyn þess að varaskip sé tiltækt í landinu. Þá áréttar ráðið að þrír mánuðir af flugsamgöngum, frá desember til febrúar, dugi ekki til að anna þeirri þörf sem sé til staðar og leggur áherslu á að tímabilið verði lengt.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst