Nýir raforkustrengir komnir í rekstur
Þrír öflugir sæstrengir sjá nú Vestmannaeyjum fyrir rafmagni
17. desember, 2025
Rafstrengur tekinn á land í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Í dag var stigið stórt skref í raforkusögu Vestmannaeyja þegar Vestmannaeyjastrengir 4 og 5 voru teknir í rekstur. Fram kemur í tilkynningu frá Landsneti að með tilkomu nýju strengjanna eykst afhendingaröryggi raforku til Vestmannaeyja og sjá nú þrír öflugir sæstrengir Vestmannaeyjum fyrir rafmagni.

„Ég vil óska íbúum og fyrirtækjum í Vestmannaeyjum til hamingju með þennan mikilvæga áfanga. Nýju strengirnir tryggja Vestmannaeyjum aukið afhendingaröryggi og skapa sterkan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs og samfélags í Eyjum.“ segir Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets.

Lagning nýrra strengja til Eyja hafði lengi verið til umræðu en eftir bilun í Vestmannaeyjastreng 3 árið 2023 var ákveðið að flýta framkvæmdum.

Eftir útboð var samið við Hengtong Submarine Cable um framleiðslu og lagningu  strengjanna, en Seaworks, sem undirverktaki, sá um lagningu þeirra. Lagning strengjanna fór fram sumarið 2025 og gengu framkvæmdir vel, veðurskilyrði voru hagstæð og viljum við þakka öllum sem komu að verkefninu fyrir frábæra samvinnu.

Verkefnið fól í sér að endurnýja og stækka tengivirkið Rimakot í Landeyjafjöru og settur var upp nýr búnaður í Vestmannaeyjum ásamt því að leggja tvo nýja strengi þar á milli.

Í tilkynningunni segir ennfremur að nýju strengirnir séu alls um 36 km að lengd, 10 km á landi og 26 km í sjó og auka flutningsgetu til Eyja um allt að 120 MVA og tryggja Vestmannaeyjum örugga orkutengingu til framtíðar.

Rimakotslína 2, hluti af styrkingu Vestmannaeyja við flutningskerfið

Samhliða Vestmannaeyjastrengjunum var nýr 132 kV jarðstrengur, Rimakotslína 2, tekinn í rekstur og styrkir hann flutningskerfi raforku á Suðurlandi og tengir Vestmannaeyjar enn frekar við meginflutningskerfið.

Strengurinn var lagður á árunum 2024 og 2025 milli Hellu og tengivirkis Landsnets í Rimakoti í Landeyjarfjöru. Strengurinn er 36 km langur, lengsti jarðstrengurinn í kerfi Landsnets.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.