Víðir og Ása  - Besta niðurstaðan horft til framtíðar
Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Víðir Reynisson. Samsett mynd

Eyjafréttir báru frétt um makrílsamning utanríkisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur við Noreg, Bretland og Færeyjar um skiptingu aflaheimilda í makríl undir alla þingmenn kjördæmisins.

Í fréttinni kemur fram að með samningnum muni makrílvinnsla í Vestmannaeyjum leggjast af. Fyrst til að svara voru þingmenn Samfylkingarinnar, Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Víðir Reynisson sem eru nokkuð sátt.

„Við styðjum að Ísland hafi gert samkomulag um makrílveiðar við fjögur strandríki. Með því er hlutdeild Íslands í makrílveiðum viðurkennd í fyrsta sinn. Með samkomulaginu er stigið skref í átt að því að byggja upp makrílstofninn eftir áralanga ofveiði úr honum. Þannig eru langtímahagsmunir Íslands tryggðir,“ segja Ása Berglind og Víðir sem bætir við.  „Ég held að enginn sé fullkomlega sáttur við samninginn. Þetta var besta niðurstaða sem náðist í þetta sinn. Einnig er nú talsverð óvissa um hvar aflinn verði unnin.“

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.