Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að veita ÍBV íþróttafélagi sérstakt framlag að upphæð 5 milljónir króna vegna tjóns sem félagið varð fyrir í tengslum við tafir á framkvæmdum við Hásteinsvöll og vegna óveðurs sem hafði áhrif á Þjóðhátíð.
Málið er framhald af umræðu frá fyrri fundi bæjarráðs þar sem fjallað var um óskir ÍBV um aðstoð frá Vestmannaeyjabæ. Á fundinum fór sviðsstjóri yfir helstu atriði úr samtölum við forsvarsmenn félagsins og nánari útfærslu á beiðni um fjárhagslega aðkomu bæjarins.
Tillagan var samþykkt með atkvæðum fulltrúa D- og H-lista, en fulltrúi E-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Í bókun frá fulltrúa E-lista kemur fram að hann geti ekki samþykkt beiðnina þar sem það sé ekki hlutverk bæjarsjóðs að ábyrgjast fjárhagslega velgengni Þjóðhátíðar.
Fjármálastjóra Vestmannaeyjabæjar var falið að útbúa viðauka sem lagður verður fyrir á næsta fundi bæjarráðs.