Karlalið ÍBV í fótbolta vann 2-1 sigur á danska B-deildarliðinu Álaborg í æfingaleik á Spáni, þar sem liðið er statt í æfingaferð um þessar mundir.
Sesar Örn Haraldsson skoraði fyrra mark Eyjamanna á 33. mínútu og Arnar Breki Gunnarsson það síðara tveimur mínútum síðar. Viggó Valgeirsson átti stoðsendingarnar í báðum mörkum ÍBV. Staðan var 2-0 í hálfleik en Álaborg minnkaði muninn í síðari hálfleik.
Sænskur framherji, að nafni Lucas, var í byrjunarliði ÍBV í leiknum. Hann er á mála hjá sænsku meisturunum í Mjällby og er á reynslu hjá Eyjamönnum, ásamt tveimur leikmönnum, frá Spáni og Portúgal.
Áður en Eyjamenn héldu út léku þeir gegn FH, í annarri umferð Lengjubikarsins og endaði sá leikur 0-0.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.