Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að sækjast eftir 2. sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í pistli sem hún birti á Facebook í dag þar sem hún fer yfir ákvörðun sína, reynslu sína af sveitarstjórnarstörfum og þær áskoranir sem framundan eru í rekstri sveitarfélagsins.
Pistil Hildar má lesa í heild sinni hér að neðan.
Í vor eru sveitarstjórnarkosningar og hef ég sem sitjandi bæjarfulltrúi mikið verið spurð hvað ég hyggist gera í komandi kosningum. Ég viðurkenni að ég þurfti að velta þeirri spurningu fyrir mér í þónokkurn tíma, enda búin að sitja sem bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í yfir áratug og sem varabæjarfulltrúi frá 2010. Ég hef þó aldrei tekið því hlutverki mínu sem gefnum hlut, þykir afar vænt um það tímabundna starf og það traust sem kjósendur hafa veitt mér hverju sinni
Ég er svo einstaklega heppin að fá að starfa við það sem mér finnst skemmtilegt og gefandi og störf mín sem sjúkraþjálfari annars vegar og bæjarfulltrúi hins vegar eru hreint ekki ólík þó annað mætti halda við fyrstu sýn. Í báðum störfum umgengst ég mikið af fólki, fólki sem oftar en ekki er að glíma við vandamál sem það þarf lausn á. Ég vinn með ólík, oft flókin kerfi sem þurfa að starfa saman sem heild og ef eitt kerfið glímir við vanda getur það haft keðjuverkandi áhrif til framtíðar. Mitt hlutverk er fyrst og fremst að hlusta, ráðleggja eftir fremsta megni og reyna að bregðast við eins og mögulegt er hverju sinni en jafnframt muna að sjaldnast eru til kraftaverkalausnir. Langtímaárangur næst með því að taka skynsamar ákvarðanir út frá vandlega íhuguðu máli og að fylgja ákvörðunum eftir með aðhaldi og seiglu.
Ég heyrði fyrir þónokkrum árum góða speki um að fylgjast með því hvert hugurinn reikar þegar þú tæmir hugann eða þér leiðist, því þar liggur eldmóðurinn þinn. Undanfarna mánuði hef ég gert talsvert af því að hlaupa sem gefur manni einmitt góðan tíma til slíkrar íhugunar. Í langflestum tilfellum leitar hugurinn að málefnum tengdum rekstri sveitarfélagsins, verkefnum sem eru framundan eða með hvaða hætti ég, sama hvaða hlutverki ég gegni hverju sinni get lagt mín lóð á vogarskálarnar til að gera það frábæra sveitarfélag sem ég er svo lánsöm að fá að búa í, enn betra.
Sú tilfinning, trúin á samfélagið, dyggur stuðningur frá nánustu fjölskyldu og vinum ásamt dýrmætri sveitarstjórnarreynslu í bakpokanum varð þess valdandi að ég ákvað að sækjast eftir því að sitja áfram í 2. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Það eru líkur á því að það verði talsverðar breytingar á næstu bæjarstjórn, og ég tel mikilvægt að í bland við nýja fulltrúa sitji í bæjarstjórn einstaklingar með reynslu og þekkingu á stjórnun sveitarfélagsins við ólíkar aðstæður. Framundan eru bæði spennandi en líka krefjandi tímar við stjórnun sveitarfélagsins og er ég tilbúin að bjóða krafta mína fram í því verkefni.
Þann 13. mars næstkomandi mun Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum, aðrar sveitarstjórnarkosningarnar í röð blása til lýðræðisveislu þar sem öllum flokksbundnum Sjálfstæðisfélögum gefst kostur á að raða upp sínum lista eftir sínu höfði. Þannig virðir Sjálfstæðisflokkurinn lýðræðið best og veitir bæjarbúum möguleika á að velja sína fulltrúa.
Því skora ég á bæjarbúa í Vestmannaeyjum að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og velja þann sem þú treystir best fyrir framtíð Vestmannaeyja og óska um leið eftir áframhaldandi stuðningi í 2. sætið.