Loðnumælingum lokið
Loðnuvertíðin er í fullum gangi.

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson var síðustu vikuna við loðnurannsóknir út af Norðvesturlandi en þeim er nú lokið. Meginmarkmiðið var að kanna hrygningargöngur og magn loðnu á svæðinu. Þetta segir í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunnar.

Yfirferðin hófst vestur af Dohrnbanka og fylgdi kantinum úti fyrir Vestfjarðamiðum allt norður að Skagagrunni (sjá mynd hér neðar). Jafnframt safnaði rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir bergmálsgögnum sem skoðuð voru með tilliti til loðnu í sjórannsóknaleiðangri kringum landið í febrúar. Nær ekkert sást af loðnu norður af landinu. Vart varð við lítils háttar magn af hrygningarloðnu á Barðagrunni og eins var ókynþroska loðna við kantinn utar á Vestfjarðamiðum. Miðað við þessar niðurstöður má draga þá ályktun að meginhluti kynþroska loðnunnar sem mældist norðvestur af landinu í janúar (alls 328 þúsund tonn) hafi gengið þaðan til austurs, réttsælis með landinu og muni skila sér til hrygningar suður og vestur af landinu.

Hafrannsóknastofnun ráðgerir ekki frekari mælingar á loðnustofninum þennan veturinn, segir að endingu í tilkynningunni.

Leiðarlínur Árna Friðrikssonar í loðnumælingum 10.- 18. febrúar og leiðarlínur Þórunnar Þórðardóttur
í sjórannsóknum dagana
 3.–17. febrúar.

Nýjustu fréttir

Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka
Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Fólkið okkar og framtíðin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.